Ásgarður Lax
Veiðileyfi í Sog Ásgarð Laxasvæði - 1 stöng seld án veiðihúss.
Veiddur er heill dagur frá morgni til kvölds.
Veiðitími: Tímabilið í Ásgarði er 24 júní – 30. september.
Frá 24.júní til 20.ágúst eru veitt á morgunvakt frá kl 7-13 kvöldvakt frá kl 16-22. Frá 20. ágúst til loka veiðitíma er seinni vaktin veidd frá kl 15-21.
Leyfilegt agn: Eingöngu Fluga og sleppiskylda á öllum fiski.
Skylduslepping á öllum fiski án undantekninga! Veiðitölur skal senda á arnibald@lax-a.is að loknum veiðidegi.
Upplýsingar: Sog Ásgarður
Ásgarður Silungur
Veiðileyfi í Sog Ásgarð silungasvæði. Heill dagur í veiði án gistingar.
Frá opnun til 24.06 eru þrjár stangir á svæðinu og eru þær seldar stakar. Frá 24.06 og út tímabilið eru seldar tvær stangir á silungasvæði (sjá skiptingu að neðan)
Veiðitími: Veidd er ein samfelld vakt frá klukkan 8-20 án hlés
Leyfilegt agn: Fluga eingöngu
Veiðireglur: Veiða og sleppa eingöngu bæði á silungi og laxi
Veiðisvæðið: Í upphafi veiðitíma, þ.e. frá 1. apríl til 20. júní er veitt frá markagirðingu við Álftavatn og upp allt Ásgarðssvæðið, að veiðimörkum Ásgarðs og Syðri Brúar.
Eftir 24. júní er aðeins veitt á svokölluðu silungasvæði. Þá afmarkast svæðið af víkinni neðan gamla veiðihússins og að markagirðingu við Álftavatn.
Upplýsingar: Sog Ásgarður silungasvæði