Fréttir

13 fyrstu tvo dagana í Langadalsá

Eins og víða annarsstaðar voru fyrstu dagarnir Langadalsá gjöfulir en 13 laxar náðust á land fyrstu tvo dagana. Meirihlutinn var tveggja ára lax og sá stærsti 102 sm úr Kirkjubólsfljóti. Lax var dreifður um alla á og veiddist lax í veiðistaðnum Bolla og alveg upp að Iðusteinum fyrir ofan Efribrúarfljót. Meðfylgjandi mynd er frá veiðimanninum Þorleifi Pálssyni af 102 sm boltanum en taka skal fram að laxinum var sleppt eftir myndatöku.

johann@lax-a.is