Nú fer að líða að lokum gæsaveiðinnar og við erum ekkert minna en hæstánægð með árangurinn á okkar svæðum. Svæðin okkar í Melasveit og Gunnarsholti hafa verið loðin af gæs og veiðin eftir því. Allir okkar veiðimenn hafa farið brosandi og endurnærðir heim.