Nú er komið að fyrsta skemmtikvöldinu fyrir meðlimi vildarklúbbsins okkar. Við ætlum að eiga notalega stund saman í „Trophy Lodge“ þar sem kynnt verður laxveiði á Kolaskaga í Rússlandi auk kynningar á veiðibúðum okkar í Grænlandi.
Ef þú ert ekki í klúbbnum þá er um að gera að skrá sig hér – Skráning í Vildarklúbbinn
Árni Baldursson hefur farið til veiða í Rússlandi um árabil og hefur hann veitt þar marga laxa í yfirstærð. Árni og Jóhann Davíð verða með kynningu á veiðunum og gott ef ekki nokkrum veiðisögum verður slætt með.
Lax-á hefur rekið veiðibúðir í Grænlandi undanfarin ár með góðum árangri og mun Jóhann Torfi kynna ferðir þangað og sýna ykkur gullfallegar myndir af svæðinu.
Staðsetning: Trophy Lodge Lax-Á, Akurhvarf 16, 203 kóp.
Dagsetning og tími: 19.11.2015 kl: 18-20.
Til að áætla fjölda biðjum við ykkur vinsamlegast að skrá ykkur með því að smella á tengilinn fyrir neðan, takmarkaður fjöldi sæta er í boði og því um að gera að skrá sig sem fyrst.
Léttar veitingar verða í boði og aðgangur er ókeypis. Ekki missa af notalegri veiðistund í skammdeginu.
Smelltu hér til að skrá þig