Þegar menn hugsa um laxveiðar er fyrsta landið sem kemur upp í hugann líklega ekki Bretland. Ja, allavega ekki svona í seinni tíð. En Bretar eiga sínar ár sem hafa að geyma laxfiska. Flestar þeirra mega muna sinn fífil fegurri en síðustu ár hafa þó margar ár verið á uppleið aftur eftir átak í umhverfisvernd og ræktun.
Síðuritara rak í rogarstand í vikunni þegar hann rakst á frétt af ákaflega heppnum veiðimanni í Bretlandi. Sá var við veiðar í ánni Avon í Hampskíri (Hampshire) en næsta stórborg þar um slóðir er Southampton. Kappinn gerði sér lítið fyrir og setti í stærsta lax sem hefur veiðst þar í 45 ár.
Laxinn var 48 tommur að lengd eða 122 cm. Fisknum var að sjálfsögðu sleppt en samkæmt kvarðanum ætti hann að vera 47.5 pund.
En þetta var ekki búið. Eftir að skjálfandi skælbrosandi veiðimaðurinn hafði skellt í sig viskídrammi og jafnað sig fór hann aftur niður að á. Þar setti hann í og landaði öðrum fiski yfir tuttugu pund. Þetta þykir svo ótrúleg heppni á sama deginum þarna um slóðir að gantast var með hvort hann gæti sagt mönnum lottótölurnar um næstu helgi.
Þetta verður gott stórlaxasumar!
Veiðikveðja
Jóhann Davíð – jds@lax-a.is