Miðdalsá í Steingrímsfirði er skemmtileg lítil á í afar fallegu umhverfi. Í ánni veiðast árlega um 50 – 100 sjóbleikjur og 10 – 30 laxar. Lítið en notalegt hús fylgir veiðinni þar sem allt að átta manns geta gist.
Miðdalsá er nokkuð fjölbreytt á, þar eru bæði hægfljótandi litlar breiður og hraðari stengir. Efst i dalnum þarf að fara yfir lítið vað til að komast á efra svæði árinnar, þar er lítið gil og foss sem hefur í gegn um árin verið einna besti staðurinn í ánni.
Uppi á dal er dásamlegt að vera, þar er fallegt og friðsælt, fjarri mannabyggðum.
Miðdalsá er prýðileg á fyrir litla hópa og sérstaklega fjölskylduvæn. Við höfum lækkað öll verð í ánni og kostar dagurinn nú frá einungis 12.000 krónum samtals fyrir leyfi fyrir tveimur stöngum, alla ána og veiðihúsið. Við fullyrðum að erfitt er að finna ódýrari veiði á landinu með gistingu, nú eða bara gistingu.
Veiðileyfi má finna hér: Miðdalsá – leyfi
Veiðikveðja
Jóhann Davíð – jds@lax-a.is