Við vorum að setja inn töluvert af heilum dögum á svæði eitt í Blöndu síðsumars. Veitt er þessa daga frá kl 7-13 og aftur frá 15-21. Í pásunni geta menn rennt sér í Börger á Blönduósi.
Gisting er ekki innifalin en finna má Fjölmarga fína gistikosti á Blönduósi.
Blöndulón lítur vel út þessa dagana og er nú vatnshæð undir meðaltali og langt undir því sem hún var á sama tíma í fyrra en þá var lónið heilum þremur metrum hærra.
Hér má finna leyfi í Blöndu 1: Blanda 1 – Veiðileyfi
Veiðikveðja
Jóhann Davíð – jds@lax-a.is