Allt að gerast í Blöndu!
Við heyrðum í tíðindamönnum okkar fyrir norðan að líflegt hefði verið í Blöndu. Steinni Haff tjáði okkur að 8 sm´laxar hefðu veiðst á morgunvaktinni á svæði eitt þannig að hann er vonandi að hellast inn.
Þrír laxar veiddust á svæði tvö í gær og Emil Örn veiddi þennan glæsilega fisk á svæði 4 sem sjá má með pistlinum.
Nú fer þetta vonandi að hrökkva í gang!
Veiðikveðja
Jóhann Davíð – jds@lax-a.is