Við heyrðum í dönskum veiðimönnum sem brostu hringinn eftir að hafa tekið sex stórlaxa á svæði fjögur í Stóru Laxá.
Ásgarður í Soginu er að hrökkva í gang, einn kom á land á morgunvaktinni og þeir misstu annan.
Blanda heldur áfram að gefa vel og á morgunvaktinni komu 22 laxar á svæði eitt. Blanda 1 nálgast 400 veidda laxa sem er það langbesta á landinu í dag.
Veiðikveðja
Jóhann Davíð – jds@lax-a.is