Landsmenn eru eflaust orðnir þreyttir á fordæmalausu ástandi síðustu mánuði og hugsunin um að komast út í náttúruna er mörgum kær. Við vonum því að sem flestir fái að njóta þess að veiða í sumar og nýta tímann með ástvinum og félögum. Nú höfum við sett af stað tilboð í vefsöluna okkar fyrir komandi sumar á mörgum veiðisvæðum og vonum …
Kynning á Stóru Laxá
Margir þekkja Stóru Laxá og fegurðina sem hún hefur upp á að bjóða. Næstu helgar mun fara fram veiðistaðakynning á öllum svæðum Stóru Laxár þar sem farið verður yfir veiðistaðina, helstu tökustaði og allar þær upplýsingar sem koma sér vel þegar veitt er í ánni. Þá gefst veiðimönnum, sér að kostnaðarlausu, að kynnast ánni á staðnum og læra á hana. …
Veiðistaðakynning á Ásgarði
Í gær fór fram fyrsta veiðistaðakynningin á laxa- og silungasvæðinu í Sogi Ásgarði en hún var vel sótt og lærdómsrík. Næsta veiðistaðakynning í Ásgarði fer fram nk sunnudag kl. 16.00. Næsta kynning er nánast fullbókuð en hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á arnibald@lax-a.is Ef hún verður fullbókuð er hægt að skrá sig á biðlista á …
210 silungum landað í Ásgarði
Það hefur verið framúrskarandi veiði á silungasvæðinu í Ásgarði, sem er auðvitað kærkomið sérstaklega á þessum skrítnu samfélagstímum. Bleikjurnar sem veiðst hafa flestar hverjar verið mjög stórar svo gamanið er mikið.
Veiðireglur í Ásgarði – Silungsveiði
Að gefnu tilefni höfum við ákveðið að breyta veiðireglum í silungsveiðinni í Ásgarði og verður svæðið hér eftir veiða og sleppa eingöngu. Við vorum með hóflegan kvóta upp á eina bleikju á stöng á dag en því miður var það ekki nóg fyrir suma. Bleikjustofninn í ánni hefur verið á undanhaldi og því stígum við þetta skref til að reyna …
Stóra 4 – júnídagar!
Stóra Laxá er að jöfnu langbest í upphafi og lokum tímabils. Svæði 4 sem er efsta svæðið á sér snemmgengin stofn sem rýkur beint upp eftir þeagar hann mætir í júní. Og þetta er allt stórlax, menn hafa séð þá yfir tuttugu pundin. Undiritaður getur ekki mælt nægjanlega mikið með því að skella sér á svæði 4 í júní, byrjun …
Veiðisvæði vikunnar – Stóra 4
Veiðisvæði vikunnar að þessu sinni er Stóra Laxá – svæði 4. Svæði fjögur í Stóru er hreint stórfenglegt laxveiðisvæði og líklega eitt það fallegsta í heimi. Svæðið veiða fjórar stangir og fylgir með gott hús með heitum potti og fimm herbergjum. Við erum að bjóða tvær stagnir á dag með húsi á verði frá 65.000 eða 32.500 kall stöngin sem …
Veiðisvæði vikunnar 17.04
Við kynnum með stolti veiðisvæði vikunnar sem er valið svæði í hverrri viku þar sem við bjóðum á góðum kjörum valin holl. Að þessu sinni er svæðið Stóra Laxá III sem er tveggja stanga svæði með fínu húsi. Vikuna 17-24.04 bjóðum við daginn með tveimur stöngum, húsið og svæðið prívat á verði frá 59.000 á dag samtals. Hægt er að …
Veiðisvæði vikunnar
Kæru veiðimenn, Með hækkandi sól og fiðring í maga ætlum við að bjóða upp á þá nýbreytni að kynna veiðisvæði vikunnar. Veiðisvæði vikunnar verður næstu viku á eftir á tilboðskjörum í vefsölunni hjá okkur. Það svæði sem ríður á vaðið er engin önnur en Ytri Rangá. Ánna þarf varla að kynna en við gerum það samt. Ytri Rangá hefur hæstu …
Gleðilega veiði!
Jæja þar kom að því, loksins er veiðitímabilið hafið! Ekki er beinlínis hægt að segja að veðrið hafi verið vormilt þennan fyrsta dag í veiði en menn létu það ekki á sig fá og klæddu sig vel. Við höfum verið að sjá fréttir af fínum aflabrögðum víðsvegar enda er sá silfraði búinn að bíða lengi eftir fyrstu flugunni. Fallegasti fiskurinn …