Ásgarður var lítið stundaður í upphafi tímabils og því kom eðli málsins samkvæmt engin lax á land fyrstu vikuna sem svæðið var opið.
Árni Baldursson kíkti þar einn seinnipart til að athuga stöðuna á svæðinu. Og staðan var góð, mjög góð, og það var bullandi líf út um allt. Árni setti í sextán laxa og landaði fimm á fjórum klukkutímum. Tveir stórlaxar komu úr Símastreng og á Ásgarðsbreiðu og úr hylnum Frúarstein komu fimm stykki.
Tómas Sigurðsson kom svo á eftir Árna og áfram hélt veislan. Tómas og félagar settu í 25 laxa og lönduðu 10.
Það er því ljóst að Sogið er hrokkið all harkalega í gang.
Við eigum veiðileyfi á góðu verði á næstunni sem má sjá hér: Sogið Vefsala
Veiðikveðja
Jóhann Davíð – jds@lax-a.is