Veiðin í Eystri hefur verið góð síðustu daga og hafa dagarnir verið að skila allt að 50 löxum. Fyrir hádegi í dag virðist svo stór ganga hafa komið inn þar sem 38 laxar komu á land og margir misstir. Við gætum því séð fyrsta 70+ laxa daginn í dag ef fram heldur sem horfir á seinni vaktinni.
Við eigum enn til stangir á frábæru verði fram á föstudag og má finna þær í vefsölunni hér: Eystri Vefsala
Vinsamlegast athugið að við gefum ekki frekari afslátt af leyfunum eða seljum hálfa daga.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Reyni M Sigmunds með einn vænann úr Eystri.
Veiðikveðja
Jóhann Davíð – jds@lax-a.is