Lax-á ehf auglýsir eftir sumarstarfsmanni á skrifstofuna
Starfsemi Lax-á felst fyrst og fremst í sölu á skot- og stangveiðiferðum bæði á Íslandi og erlendis ásamt rekstri veiðihúsa og hótels
Lax-á er leiðandi fyrirtæki í veiðiferðaþjónustu á Íslandi ásamt því að starfa á Grænlandi ogí Skotlandi
Starfssvið:
- Sala veiðileyfa, símsvörun, skipulagning ferða, skrif á vef og viðhald sölusíðu. Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
- Áhugi og reynsla af veiðiskap
- Reynsla af sölumennsku og ferðaskrifstofustörfum kostur
- Nákvæmni, stundvísi og ábyrgð, hæfni í mannlegum samskiptum
- Þekking á bókhaldskerfi DK kostur
- Þekking á WordPress vefumsjónarkerfi
- Almenn tölvukunnátta (Word, Excel,Outlook.)
- Góð ensku og íslenskukunnátta – önnur tungumál kostur
- Ágæt ritfærni á íslensku og ensku
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir óskast sendar í tölvupósti til:
Jóhann Davíð Snorrason – Markaðs & sölustjóri Lax-Á
Tölvupóstfang: jds@lax-a.is
Umsóknarfrestur er til og með 27.05.