[vc_row padding_top=“0px“ padding_bottom=“0px“][vc_column fade_animation_offset=“45px“ width=“1/1″][clear][clear][/vc_column][/vc_row][vc_row inner_container=“true“ no_margin=“true“ padding_top=“0px“ padding_bottom=“0px“ border=“none“ bg_pattern=“674″][vc_column fade_animation_offset=“45px“ width=“2/3″][container][text_output]Lengi hefur verið vitað að Leirvogsá geymir góðan stofn af sjóbirting og hafa menn í gegn um árin fengið fanta flotta birtinga allt upp í 15 pund.
Vorið 2018 var farið af stað með tilraunaveiðar á sjóbirting í ánni og var veiðin framar öllum vonum. Á neðri hluta árinnar reyndist töluvert magn af birtingi sem var ginnkeyptur fyrir flugunni.
Við hjá Lax-Á höfum ákveðið að opna vorveiðina fyrir almennan markað frá og með árinu 2019.
Það er stutt að halda til vorveiða í Leirvogsá, áin er sannkölluð vin rétt fyrir utan skarkala höfuðborgarinnar.
Athugið að veiðihúsið er lokað og senda ber allar veiðitölur á: jds@lax-a.is
Leirvogsá er bergvatnsá sem rennur úr Leirvogsvatni 12km leið til sjávar. Fiskgengur hluti árinnar frá Tröllafossi að ósi er 8km. Finna má marga og fjölbreytta veiðistaði í ánni og afar rúmt er um stangirnar tvær.
Staðsetning: Leirvogsá er rétt fyrir utan Mosfellsbæ, um 20 mínútna akstur frá miðbæ Reykjavíkur.
Leyfilegt agn: Eingöngu fluga í vorveiðinni og öllu sleppt.
Kvóti: Öllum fiski ber að sleppa án undantekninga!
Veiðihús: Veiðihúsið við Leirvogsá er gamalt en þjónar sínum tilgangi vel. Ekki er boðið upp á gistingu við ána en húsið er notað til að matast í hléum.
Veiðisvæði: Veiðisvæðið nær frá og með Helguhyl að og með Tunguborgareyrum í vorveiðinni. Veiði er bönnuð ofan við Helguhyl.
Veiðisvæðaskiptingar: Stangirnar eru eingöngu seldar saman, menn koma sér saman um skiptingar.
Stangarfjöldi: 2 stangir seldar saman. Seldur er einn eða fleiri dagar frá morgni til kvölds.
Tímabil: 10.04 -15.05
Daglegur veiðitími: 08-20 án hlés.
Veiðitæki: Einhenda 9” fyrir línu 6-8, flotlína, intermediate.
Staðhættir og aðgengi: Ágætt í neðri hluta.
Umsjónarmaður/veiðivörður: Viðar Jónasson S: 8482914 : Gunnar Andri Viðarsson S: 8242914
Veiðikort: Leirvogsá
Veiðibók: Er í veiðihúsinu, munið að skrá afla daglega.
Bókanir og nánari upplýsingar: Skrifstofa Lax-á, s: 531 6100, Vefsala Lax-Á
Staðsetning
[/text_output][/container][/vc_column][vc_column fade_animation_offset=“45px“ width=“1/3″][container][text_output]











[/text_output][/container][/vc_column][/vc_row][vc_row padding_top=“0px“ padding_bottom=“0px“][vc_column fade_animation_offset=“45px“ width=“1/1″][clear][/vc_column][/vc_row]

