[vc_row padding_top=“0px“ padding_bottom=“0px“][vc_column fade_animation_offset=“45px“ width=“1/1″][clear id=““ class=““ style=“margin-top: 80px;“][/vc_column][/vc_row][vc_row inner_container=“true“ no_margin=“true“ padding_top=“0px“ padding_bottom=“0px“ border=“none“ bg_pattern=“674″][vc_column fade_animation_offset=“45px“ width=“2/3″][container][text_output]

Norðurá II-Munaðarnes

Norðurá hefur í gegn um tíðina verið einhver gjöfulasta laxveiðiáin á Íslandi. Norðurá á sér ríka sögu veiða og var hún fyrst uppgötvuð sem veiðiá ef svo má segja af breskum aðalsmönnum á nítjándu öldinni. 

Norðurá hefur átt sér sérstakan sess í hjarta íslenskra veiðimanna og ber hún heitið: „fegurst áa“ með miklum sóma.

Vatnasvæði Norðurár er gríðarvíðfemt en hún á upptök í Holtavörðuvatni 62 km frá sjó og telst vatnasvið árinnar vera 518 km. Fossarnir Laxfoss og Glanni voru lengi farartálmi laxa en nokkuð er síðan gerður var fiskistigi í Laxfoss og sprengt við Glanna til að greiða för. Eftir þetta á laxinn greiða leið allt upp að Holtavörðuheiði.

Veiðimenn ATH

Veiðimenn eru skyldugir að sleppa öllum  stórlaxi 70 cm plús.

Staðsetning:  Vesturland, um 110 km frá Reykjavík.

Veiðisvæði Norðurár II – Munaðarnes

Veiðisvæðið er neðst í ánni frá opnun og fram í byrjun júlí og er það selt án veiðihúss. Veiðisvæðið nær frá Engjanefi til og með Kálfhylsbroti. 

Stangarfjöldi: 3 stangir á Norðurá II – Munaðarnes

Tímabil : 6. júní – byrjun júlí.

Seld holl/dagar: Einn eða fleiri heilir dagar frá morgni til kvölds.

Daglegur veiðitími :

8–13 og 16–22 (opnun – byrjun júlí.) 

Veiðitölur – Öll áin

Veiði 2010: 2279 laxar : Veiði 2011: 2134 laxar : Veiði 2012: 993 laxar

Veiði 2013: 3351 laxar : Veiði 2014: 924 laxar : Veiði 2015: 2886 laxar

Veiði 2016: 1342 laxar : Veiði 2017: 1719 laxar : Veiði 2018: 1692 laxar

Veiði 2019: 577 laxar : Veiði 2020: ??? laxar

Meðalvigt: 6 pund.

Leyfilegt agn: Aðeins fluga með þess til gerðum stöngum.

Hentugustu veiðitæki: Tvíhenda 12-14”, lína 8-10.

Bestu flugur: Blue Charm, Snælda, Black & Blue, Sunray shadow, Frances, Collie Dog ,Willie Gun, Haugur og ýmsar  gáruhnútstúpur og örtúpur.

Staðhættir og aðgengi: Gott, 4×4 bílfært að langflestum veiðistöðum.

Veiðihús Norðurá II Munaðarnes:

Ekkert veiðihús, seldir eru heilir dagar án gistingar.

Veiðikort: 

Veiðibók: Skylt er að skrá allan afla daglega og tilkynna merkta laxa til umsjónarmanns.

Sími í veiðihúsi: 435 0098

Bókanir og nánari upplýsingar:

Skrifstofa Lax-á, s: 531 6100 – Jóhann Davíð – jds@lax-a.is[/text_output][/container][/vc_column][vc_column fade_animation_offset=“45px“ width=“1/3″][container][text_output][/text_output][/container][/vc_column][/vc_row][vc_row padding_top=“0px“ padding_bottom=“0px“][vc_column fade_animation_offset=“45px“ width=“1/1″][tabs id=““ class=““ style=““][/tabs][/vc_column][/vc_row][vc_row padding_top=“0px“ padding_bottom=“0px“][vc_column fade_animation_offset=“45px“ width=“1/1″][tab_nav type=“three-up“ float=“left“ id=““ class=““ style=““][/tab_nav][/vc_column][/vc_row]