[vc_row padding_top=“0px“ padding_bottom=“0px“][vc_column fade_animation_offset=“45px“ width=“1/1″][clear][/vc_column][/vc_row][vc_row inner_container=“true“ no_margin=“true“ padding_top=“0px“ padding_bottom=“0px“ border=“none“ bg_pattern=“674″][vc_column fade_animation_offset=“45px“ width=“2/3″][container][text_output]
Syðri Brú er skemmtilegt og fjölskylduvænt einnar stangar laxveiðisvæði. Syðri-Brú er efsta laxveiðisvæðið í Soginu, eingungis í 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Svæðið er stutt og þægilegt yfirferðar, með fáa en gjöfula veiðistaði. Þar ber helst að nefna Landaklöpp, sem gefur oft ótrúlega veiði. Athygli er vakin á því að frá og með sumrinu 2011 er skylt að sleppa öllum stórlaxi í Syðri Brú til að hlúa að stofni árinnar.
Sogið er vatnsmesta bergvatnsá landsins og ein þekktasta laxveiðiáin. Sogið á upptök sín í Þingvallavatni og rennur þaðan um Úlfljótsvatn og síðan í Álftavatn skammt neðan við Þrastarskóg. Mikill uppgangur hefur verið í laxveiði í Soginu á undanförnum árum og hefur svæði Syðri Brúar ekki síst átt stóran þátt í því.
Stangarfjöldi: Veitt er á eina stöng fyrir landi Syðri Brúar
Holl/dagar: Seldir eru stakir dagar frá hádegi til hádegis.
Tímabil:24. júní til 24. september.
Daglegur veiðitími:7–13 og 16–22 (24. júní – 20. ágúst) 7–13 og 15–21 (20. ágúst – 24. september)
Leyfilegt agn:Fluga – skylt að sleppa öllum laxi yfir 70 cm.
Veiðitæki:Tvíhenda 12-14 fet, einhenda fyrir línu 7-9.
Veiði 2009: 141 laxar
Veiði 2010: 212 laxar
Bestu flugur: Gárutúbur, Black Sheep, Microtúbur og Collie Dog.
Veiðihús:
Nytt og glæsilegt veiðihús var tekið í notkun sumarið 2011. Í húsinu eru tvö góð tveggja manna svefnherbergi auk svefnpokapláss undir risi á efri hæð í húsinu. Alls er rúmpláss fyrir 8 manns en sængur og koddar eru fyrir fjóra. Í húsinu eru öll helstu eldhúsáhöld, eldavél með bakaraofn, örbylgjuofn og uppþvottavél. Á verönd er gasgrill, þvottahús er með vaski og aðgerðaraðstöðu.
Leiðarlýsing að húsi:
Ekið er frá Reykjavík framhjá Hveragerði áleiðis til Selfoss á þjóðvegi 1, rétt áður en komið er að Selfossi er ekið upp afleggjara til vinstri í áttina að Grímsnesi og Þrastarlundi. Þessi vegur er ekinn framhjá Þrastalundi inní Þrastaskóg. Þegar komið er að Þingvallavegi (vegnúmer 36) þá er beygt inná þann veg til vinstri og hann ekinn 8 km í gegnum sumarhúsabyggð, þangað til komið er að stóru mastri og þá er beygt af Þingvallavegi inná malarveg. Fyrsta beygja til hægri er valin þar og þá valinn annar afleggjari til vinstri og ekið í átt að Soginu og þar er húsið við ána.
Umgegnisreglur:
Veiðimenn mega koma í húsið 1 klst fyrir veiðitíma og skal húsið rýmt einni klst eftir að veiðitíma líkur. Munið að ræsta og hreinsa rusl.
[/text_output][text_output]
Staðsetning
[/text_output][/container][/vc_column][vc_column fade_animation_offset=“45px“ width=“1/3″][container][text_output]

[/text_output][/container][/vc_column][/vc_row][vc_row padding_top=“0px“ padding_bottom=“0px“][vc_column fade_animation_offset=“45px“][/vc_column][/vc_row]

