Laxveiði á Íslandi á sér marga aðdáendur og margir geta ekki hugsað sér eitt sumar án þess að renna fyrir þann silfraða. Lax-á býður upp á fjölmarga kosti þegar kemur að laxveiði á Íslandi.
Við erum með laxveiðiár í öllum stærðum allt frá tveggja stanga ám þar sem menn sjá um sig sjálfir upp í stærri ár þar sem full þjónusta er keypt með leyfunum. Hér að neðan má sjá framboðið hjá okkur í laxveiði.
Tveggja stanga laxveiðisvæði hjá okkur eru eftirfarandi:
Hallá á Skagaströnd er lítil og viðkvæm, fullkomin fyrir nettar græjur: Hallá
Stóra Laxá Svæði III er eina tveggja stanga svæðið í Stóru: Stóra Laxá III
Þriggja stanga laxveiðisvæði eru eftirfarandi:
Blanda III er bráðskemmtilegt veiðisvæði þar sem tvíhendur eru málið: Blanda III
Sog Ásgarður er dásamlegt veiðisvæði í stærstu bergvatnsá landsins: Sog Ásgarður
Blanda IV er hreinlega eitt skemmtilegasta veiðisvæði á landinu: Blanda IV
Fjögurra stanga laxveiðisvæði:
Blanda I er dásemdin ein í byrjun tímabils (Full þjónusta): Blanda I
Blanda II er þekkt fyrir fallegar breiður þar sem flugan fer vel: Blanda II
Stóra Laxá IV er hreinlega eitt fallegasta veiðisvæði í heimi: Stóra Laxá IV
Stóra Laxá I&II er þekkt fyrir stóra laxa: Stóra Laxá IV
Langadalsá er gullið við Djúp: Langadalsá
Svartá er dásamleg fluguveiðiá: Svartá
Tungufljót er fullkomið í dagsferð: Tungufljót
Laxveiðisvæði með fleiri en tíu stöngum:
Eystri Rangá er ein besta á landsins (Full þjónusta): Eystri Rangá
Ytri Rangá er aflahæsta á landsins síðustu ár (Full þjónusta): Ytri Rangá