Lax-Á hefur nokkra ágæta kosti á sínum snærum þegar kemur að silungsveiði. Sum af okkar svæðum í silungsveiði opna þann fyrsta apríl og eru því kjörin til að hefja tímabilið. Hér að neðan má sjá framboðið í silungsveiði hjá Lax-Á.
Ásgarður – silungur.
Tímabilið hefst 01.04 og lýkur 20.09. Þrjár stangir eru leyfðar á svæðinu.
Hér má lesa sér til um svæðið: Ásgarður – silungur
Tungufljót – silungur.
Tímabilið hefst 01.04 og lýkur 20.09. Þrjár stangir eru leyfðar á svæðinu.
Hér má lesa sér til um svæðið: Tungufljót silungur
Blanda – vorveiði
Tímabilið hefst 15.04 og lýkur 15.05. Fjórar stangir eru leyfðar á svæðinu.
Svartá – silungur
Tímabilið hefst 20.06 og lýkur 30.09. Tvær stangir eru leyfðar á svæðinu.